Jæja loksins kemur ný uppskrift inn. Það er búið að vera brjálað að gera síðustu daga. Eiginmaðurinn búin að vera í útlöndum, amma og afi að norðan búin að vera í heimsókn, búið að eyða einum degi á slysó og ýmislegt fleira svo það hefur verið lítill tími til að setja inn einhverjar uppskriftir. En bæti úr því hér með.
Þessar ristuðu möndlur hafa heldur betur slegið í gegn á heimilinu hjá öllum aldurshópum. Þær eru liður í því að finna hollara snakk heldur en kartöflu-transfitu-msg snakkið sem eiginmaðurinn kaupir gjarnan. Og áætlunarverkið tókst því honum fannst þetta ekkert smá gott 🙂 Þær eru bæði saltar og sætar og verða því skemmtileg blanda mitt á milli þess að vera snakk og nammi.
Hráefni:
- 2,5 bollar möndlur
- 2 msk vatn
- 2 tsk olía (ég hef bæði prufað að nota kókosolíu og vínberjakjarnaolíu = bæði gott )
- 1/4 bolli hrásykur
- 1 tsk salt
- 1 tsk malað engifer
- 2 msk hunang
Aðferð:
- Setjið möndlur á bökunarplötu og bakið í ofni í 10-15 mín við 160°C Hrærið í þeim nokkrum sinnum á meðan.
- Á meðan hitið þið í litlum potti hunang, vatn og olíu. Látið suðuna koma upp en lækkið svo hitann.
- Í annari skál blandið þið saman sykri, salti og engiferi.
- Þegar möndlurnar eru komnar út úr ofninum setjið þær þá út í pottinn og hrærið þangað til þær eru vel hjúpaðar (getur tekið nokkrar mín).
- Stráið nú sykurblöndinni yfir og hrærið vel, setjið á bökunarpappír og látið kólna.
Verði ykkur að góðu 🙂
Þær endast í viku í loftþéttu íláti.
Það má skipta engifer út fyrir kanil.
Ég prufaði að nota kókospálmasykur og þannig er þær talsvert hollari en í sannleika sagt þá verða þær töluvert betri á bragðið með venjulegum hrásykri. Ástæðan var sú að kókospálmasykurinn bráðnaði mikið meira heldur en hrásykurinn gerði.
Þetta var eitthvað fyrir mig 🙂 Hrikalega gott. Takk fyrir mig Oddrún. kv. Tryggvi Atlantsskip
Gaman að heyra 🙂 og gaman að heyra frá þér. Bestu kveðjur 🙂
Ji, hvað þetta hljómar vel. Ég verð að prófa! Var að finna síðuna þína og hlakka til að fínkemba hana, hér er aldeilis margt girnilegt! 🙂
Takk fyrir 🙂
Vona að þú hafir gaman af því að prufa af síðunni 🙂
Kær kveðja,
Oddrún
lítur girnilega út