Það er uppselt á námskeiðið en ef þú vilt að ég láti þig vita hvenær næsta námskeið verður máttu bara senda póst og ég læt þig vita 🙂
Langar þig til að bæta mataræði þitt eða fjölskyldunnar? Vantar þig nýjar hugmyndir eða veist ekki hvar þú átt að byrja? Besta leiðin til að bæta mataræðið er að byrja að bæta einhverju nýju, spennandi og bragðgóðu inn.
Við búum til og smökkum:
– Grænan sjeik, chia graut á 2 vegu, kínóa á 2 mismunandi vegu, girnilegt salat, heimagert ofurhollt súkkulaði og hráköku. Við borðum síðan saman og spjöllum um allt það sem ykkur langar að spyrja um.
Námskeiðið er í formi fyrirlesturs og sýnikennslu. Það fylgir með mappa með 40 uppskriftum, auk góðra ráða að bæta heilsuna. Ég byggi námsefnið á hugmyndarfræði IIN.
Námskeiðið er í heimilislegu umhverfi því það er haldið heima hjá mér (en engar áhyggjur börnin verða í pössun ;))
Dagsetning: 6. maí, mánudagur kl. 17.00-19.30 (gæti dregist til 20.00 ef það er margt sem þarf að ræða 😉 )
Verð 5000 kr (ég á enn eftir 3 vikur af náminu mínu svo næst verður þetta aðeins hærra)
Hámark 10 manns
Ef þig langar að koma sendu mér þá nafnið þitt og netfang á heilsumamman@gmail.com eða skilaboð í gegnum facebook síðuna og ég sendi þér upplýsingar um heimilisfangið 🙂
Hér eru myndir frá síðasta námskeiði
Hlakka til að sjá ykkur og eiga skemmtilega stund saman 🙂
Sæl og takk fyrir að deila allri tessari flottu vitneskju. Algjör snilld.
Èg hefði mikinn áhuga á að koma á námskeið til þín værir þú til í að láta mig vita hvenær næsta námskeið verður hjá þèr.
Kær kveðja,
Sigríður S Óskarsdóttir
Sæl og blessuð, Gaman að heyra, ég læt þig vita 🙂
Kær kveðja,
Oddrún
Hlakka til að koma á námskeið hjá þér, nýt þess að skoða heimasíðuna þína! 🙂
Hlakka líka mikið til að fá þig á námskeið 🙂