Nærðu þig vel – matreiðslunámskeið 29.maí – Uppbókað

Það var fljótt að fyllast á námskeiðið enda bara 12 sæti í boði.  Það voru nokkrir á lista sem komust ekki á síðasta námskeið.  Ég ætla því bara strax að byrja að skrá á næsta, ég verð með það fimmtudaginn 6.júní kl. 17.00.

Langar þig til að bæta mataræði þitt eða fjölskyldunnar?  Vantar þig nýjar hugmyndir eða veist ekki hvar þú átt að byrja?  Besta leiðin til að bæta mataræðið er að byrja að bæta einhverju nýju, spennandi og bragðgóðu inn.

Við búum til og smökkum:
– Grænan sjeik, chia graut á 2 vegu, kínóa á 2 mismunandi vegu, girnilegt salat, heimagert ofurhollt súkkulaði og hráköku.  Við borðum síðan saman og spjöllum um allt  það sem ykkur langar að spyrja um.

Námskeiðið er í formi fyrirlesturs og sýnikennslu. Það fylgir með mappa með 40 uppskriftum, auk góðra ráða að bæta heilsuna.  Ég byggi námsefnið á hugmyndarfræði IIN.

Námskeiðið er í heimilislegu umhverfi heima hjá mér (en engar áhyggjur börnin verða í pössun  😉 )

Dagsetning: 29.maí, miðvikudagur,  kl. 17.00-20.00

Verð 5000 kr (ég á enn eftir 2 vikur af náminu mínu svo næst verður þetta aðeins hærra)

Hámark 10-12 manns

Ef þig langar að koma sendu mér þá nafnið þitt og netfang á heilsumamman@gmail.com  eða skilaboð í gegnum facebook síðuna og ég sendi þér upplýsingar um heimilisfangið :)

Hér eru myndir frá síðasta námskeiði

Hlakka til að sjá ykkur og eiga skemmtilega stund saman :)

Published by

Leave a Reply