Site icon Heilsumamman

Hnetu-hrískex – laugardagsnammið í Fréttablaðinu

Það var gaman að fá að gefa uppskrift fyrir Fréttablaðið í dag, hérna kemur hún fyrir ykkur sem misstuð af Fréttablaðinu í dag.

Hráefni:

Aðferð:

  1. Blandið saman kókosolíu, hlynsýrópi, kakói og hnetusmjöri.
  2. Myljið hrískökurnar saman við og blandið vel.
  3. Bætið saman við sólblómafræjum eða smátt söxuðum pekanhnetum ásamt mórberjunum.
  4. Setjið blönduna í sílíkonmót eða leggið bökunarpappír ofan í mót og setjið blönduna ofan á bökunarpappírinn.
  5. Setjið inn í frysti í amk. 30 mín.

Best að geyma inni í frysti (ef það verður afgangur)

Það má alveg sleppa hnetusmjörinu og setja þá aðeins minna af hrískökunum.

Það má líka setja hvað sem er saman við, nota það sem er í skápunum, þurrkuð trönuber, rúsínur, kókosmjöl, kókosflögur, sesamfræ ofl.

Það er svo gaman að búa sér til sitt eigið nammi 🙂   Það eru ennþá sæti laus á nammi-námskeiðið sem verður á mánudagskvöldið hjá Lifandi markaði, 2 klst, fullt af smakki, flott uppskriftarhefti með 40 uppskriftum og skemmtileg kvöldstund 🙂

Það er enginn eiginlegur fyrirlestur um sykur eins og við Steinunn vorum með fyrir áramót en ég kem inn á fullt af hlutum, t.d. mismunandi sætu sem hægt er að nota ofl.

Njótið helgarinnar 🙂

Exit mobile version