Site icon Heilsumamman

Hamp-nammi

Þetta er alveg hrikalega gott nammi og telst eiginlega bara sem vítamín nammi því það er svo hollt.  Fullt af próteinum, trefjum, góðum fitusýrum, kalki ofl. gæti örugglega skrifað heila blaðsíðu um það hvað það er hollt, en ætla að sleppa því og gefa ykkur bara uppskriftina.  Ég fann uppskriftina á www.greenkitchenstories.com sem er í miklu uppáhaldi hjá mér en ég átti ekki allt sem átti að fara í uppskriftina svo ég neyddist til að breyta henni aðeins.  Það kom alveg ljómandi vel út svo ég hugsa að ég haldi mig við hana.

Hráefni:

Aðferð:

  1. Leggið döðlurnar í bleyti í kalt vatn í 20-30 mín eða hellið yfir þær heitu vatni og látið liggja í smástund.
  2. Setjið allt hráefnið nema kókosolíuna og döðlurnar  í matvinnsluvélina og blandið í smástund. Það má vera smá „crunchy“. / Eða ef þið eigið ekki matvinnsluvél, malið með töfrasprota.
  3. Setjið eina og eina döðlu í einu (nema þið séuð með mega túrbó matvinnsluvél sem ræður við allt í einu) og setjið svo kókosolíuna út í líka (ekki bræða hana, best að hún sé við stofuhita).  Ef þið eigið ekki matvinnsluvél þá má bara mauka döðlurnar með töfrasprota og blanda svo saman með sleif/höndum.
  4. Setjið deigið á smjörpappír, þjappið því og látið kólna. Skerið svo í bita og geymið inni í ísskáp.

 

Exit mobile version