Site icon Heilsumamman

Skólahristingur

Skólinn er byrjaður og allt að komast í rútínu.  Ég sakna sumarsins en samt er eitthvað svo ágætt þegar allt fer aftur í reglu og kemst skipulag á allt.   Eitt það dásamlegasta við haustið eru berin, blessuð berin, ég byrja bara að brosa við tilhugsunina um ber og berjamó 🙂  Því miður er ekki eins mikil berjaspretta eins og hefur oft verið en það eru þó komnir 20-25 litrar inn í frysti sem verður svo deilt samviskusamlega niður svo það endist fjölskyldunni yfir veturinn.

Ég vona innilega að þið hafið haft tök á því að tína eitthvað af berjum sem bíða núna í fyrstinum eftir drykkjum vetrarins.

Þessi drykkur er tilvalin morgundrykkur, í honum er ýmislegt sem er gott fyrir góða heilastarfsemi svo hann er sérstaklega góður fyrir skólakrakkana en auðvitað alla hina líka.

 Hráefni:

(2 stórir drykkir eða 4 litlir)

Aðferð:

Allt sett í blandara og blandað vel saman, bætið hveitikíminu/hörfræjunum í alveg undir lokin.

Ef þið viljið gera drykki meira spennandi er sniðugt að setja þá í fín glös og/eða nota flott rör 🙂

Þesi drykkur er ekki bara góður fyrir skólafólk heldur líka fyrir skrímsli og ofurhetjur 😉

 

Verði ykkur að góðu 🙂

Exit mobile version