Þessa köku gerðum við mæðgurnar um síðustu helgi þegar önnur þeirra fékk vinkonu í heimsókn. Klukkan var að verða fjögur, ég mátti ekki vera að neinu eldhúsveseni en öllum langaði í eitthvað gott. Hér kemur afraksturinn. Þetta tók okkur uþb. 15 mín frá því við byrjuðum og þangað til kakan var komin á borðið.
Vinkonunni og stelpunum fannst kakan svo góð að þær fengu sér allar 3 sneiðar sem mér finnst nú bara frábær meðmæli 🙂
Hér kemur uppskriftin:
- 1 bolli döðlur
- 1 bolli kókos
- 1 bolli pecan hnetur
- 4-5 msk kakó
- dash af vanillu og himalayja salti
- Döðlurnar lagðar í bleyti í smá stund og svo maukaðar með töfrasprota.
- Pecan hneturnar malaðar
- Öllu hrært saman.
- Kakan mótuð, við ákvaðum að leyfa hugmyndafluginu að ráða og mótuðum hana sem hjarta.
Krem ofaná:
- 5 msk kókosolía
- 5 msk hlynsýróp
- 5 msk kakó
- örlítið af vanillu og smá himalayjasalt
Aðferð:
- Blandið öllu saman, ekki bræða kókosolíuna, heldur hafið hana við stofuhita.
- Smyrjið kreminu á kökuna og kælið.
- Skrautið ofan á er kókosflögur og mórber (mulberry) en gæti verið hvað sem er t.d. fersk jarðaber nammi namm 🙂
Hér koma fleiri myndir af kökunni sem er sú allra vinsælasta
Verði ykkur að góðu og góða helgi 🙂
