Mikið er langt síðan ég hef sett inn einhverja uppskrift. Aukatími virðist vera af mjög skornum skammti yfir sumarið, því þegar veðrið er gott (sem hefur reyndar ekki verið of oft í sumar hér fyrir sunnan) reynum við að nota tækifærið og gera eitthvað skemmtilegt og vera úti. Svo er það vinnan og allt púsluspilið sem fylgir þegar skólinn hættir á vorin og eins þegar leikskólinn fer í frí.
Við erum búin að eiga yndislegt sumar hingað til þrátt fyrir að sólin sé af skornum skammti, áttum góða daga á Akureyri í lok júní, nokkrar helgar í Borgarfirðinum og svo vorum við í yndislegu fríi í síðstu viku á Flúðum. Þetta sumar hefur liðið alltof hratt finnst mér en sem betur fer er það ekki búið ennþá og um að gera að njóta til hins ítrasta það sem eftir er.
Fyrir alla sem eru í ferðalögum þessa dagna eru hérna nokkrar myndir sem ég tók í sumar við hin og þessi tækifæri, kannski fær einhver góða hugmynd 😉
Það er frábær hugmynd að taka með sér ávexti, jafnvel þó það náist ekki að skera þá niður er hægt að taka þá með og skera svo niður á staðnum, í þessu tilfelli í Nauthólsvík.
Eða búa til smoothie og setja í góða flösku sem heldur drykknum köldum.
Samloka með grófu brauði, eggjum, grænmeti og fleiru gefur miklu betri orku en að grilla sér pyslu 😉
Gott salat er alltaf gott að taka með sér og mér líður miklu betur af því en að borða samlokur en ég er alveg ein um þá skoðun í fjölskyldunni 😉
Leyfið hugmyndafluginu að ráða, hér er ég með: kál, papriku, vorlauk, pekan hnetur, valhnetur, þurrkaðar gráfíkjur
Laumið frá einni kjúklingabringunni og nýtið í nesti daginn eftir. Þetta þarf ekki að vera flókið, kál, grúrka, paprika, rauðlaukur, sýnist glitta í mangó þarna líka og svo allt toppað með heimagerðri sinnepsósu ef maður er í einhverju “djúsí” stuði 🙂
Og fyrir bílferðirnar, þetta kláraðist á augabragði, glænýjar íslenskar gulrætur, það verður ekki betra.
Harðfiskur með smjöri…. þarf engin fleiri orð nema bara næring og prótein 😉
Gamlar kókflöskur eru tilvaldar undir vatnið. Kallinn minn bara “verður” að fá sér kók stundum og ég “reyni” að sleppa sykurfyrirlestrinum en fylli svo bara flöskuna af vatni fyrir hann þegar hann er búin að klára 😉
Þetta er sniðugt nesti, áttu smá afgang af sjeik, settu hann í krukku og 2-3 msk af chia fræjum út í og blandaðu vel saman, eftir smástund ertu komin með þetta fína “jógúrt”. En ekki gleyma skeiðinni….
Kókoskúlur af öllum gerðum eru tilvaldar í nesti. Til dæmis þessar valhnetukúlur, gojiberjakúlur, hnetutrufflur eða hampnammið
Box eða krukka fullt af : hnetum, rúsínum, kókos, mórberjum, goji berjum, sólblómafræjum, sólblómafræjum og fleira.
Það er ekki þannig að ég “svindli” aldrei í ferðalögum, ó jú, það gerist sko…en líkurnar minnka eftir því sem nestið er betra 😉
Góða ferð 🙂
Published by