Kjúklinga- núðlusúpa

Þessi súpa er í uppáhaldi hjá börnunum á heimilinu.  Hún er mjög fljótleg þó hún virðist kannski vera smá maus við fyrstu sýn. Ég geri hana oft ef ég á smá afgang af kjúkling.  Það má nota hvaða grænmeti sem til er og hvaða núðlur sem er.  Ég nota hrísgrjóna núðlur því þær eru glúteinlausar.  Ég er hinsvegar alltaf að reyna að finna hrísgrjóna núðlur úr hýðishrísgrjónum en hef ekki fundið ennþá, ætli ég þurfi ekki að fara gera mér ferð í austurlensku búðirnar.  Þessi súpa minnir rosalega mikið á  „spotta-súpuna“ frá Maggi sem ég borðaði oft sem krakki, svo ég fæ alltaf einhverja nostalgíu þegar ég borða þessa súpu  🙂  Hér áður fyrr keypti ég oft þessa súpu frá Maggi þangað til ég fór að lesa aftan á hana og komst að því að hún innihélt msg auk allskonar aukaefna.

Þessi uppskrift er miðuð við ca 5 manns en ég hef aldrei farið eftir uppskrift þegar ég geri þessa súpu heldur slumpa bara eftir tilfinningu og því sem er til en síðast þegar ég eldaði hana reyndi ég eftir fremsta megni að mæla hvað ætti að fara í hana 🙂

Kjúklinga-núðlusúpa

Hráefni:

  • 2 l vatn
  • 1 msk grænmetiskraftur (nota frá Sollu)
  • 1 msk kjúklingakraftur (nota Tasty)
  • ca hálfur brokkolíhaus, frekar lítill
  • ca 10 cm biti af Púrru
  • 3 -4 litlar gulrætur
  • tæpl. hálf gul paprika
  • tæpl. hálf rauð paprika
  • 3 hvítlauksrif
  • ca 2 cm ferskt engifer
  • Kjúklingakjöt (ca 200 gr)
  • Núðlur ca 1 skammtur
  • Dash af öllu: cumin, timían, kóríander, turmerik, salt og pipar

Aðferð:

  1. Vatn sett í pott ásamt kraftinum og hitað að suðu.
  2. Grænmetið sett út í: fyrst gulrætur, svo stöngullinn af brokkólínu (smátt saxaður), því næst paprikurnar og púrran.
  3. Mér finnst koma mjög vel út að setja engiferið og hvítlaukinn í mini-matvinnsluvélina ásamt smá vatni og þá samlagast það alveg vatninu og verða engir sterkir engifer bitar fyrir litla fólkið.  En annars bara smásaxa og setja útí.
  4. Kryddað.
  5. Núðlurnar soðnar skv. leiðbeiningum, þeim er bætt út í alveg í lokin.
  6. Kjúklingurinn settur út í.
  7. Smakkið svo til, kannski þarf meira krydd, meira vatn, smá meira salt eða jafnvel pínu hrásykur til að fá meiri „dýpt“ í bragðið.

engifer og hvítlaukurhvítlaukur og engifer

 

 

 

 

Verði ykkur að góðu 🙂

 

Kjúklinga-núðlusúpa

Með því að nota ferskt engifer, ferskan hvítlauk og túrmerik er þessi súpa algert ofur og tilvalin haustsúpa þegar kvefpestirnar eru komnar á kreik.  Túrmerik  hefur verið notuð til lækninga í margar aldir í bæði Kínveskri og Indveskri læknisfræði.  Það hefur áhrif á ótrúlega margt, m.a.  bólgueyðandi áhrif, krabbameinsvarnandi áhrif, talið lækka kólesterólið, hjálpa til við liðagigt og vefjagigt og draga úr hættu á barna-hvítblæði auk þess að vera Alzheimer-varnandi!  Engifer býr líka yfir bólguhamlandi áhrifum, er krabbameinsvarnandi og gríðarlega gott fyrir ónæmiskerfið. Hvítlaukurinn er náttúrulegt sýklalyf og því frábært að nota eins mikið af honum og við getum 🙂  Þessar jurtir hafa marga fleiri lækninga-eiginlega en ég tók bara nokkur dæmi.

Published by

Leave a Reply