Þetta er frábær hugmynd. Bæði fyrir þá sem eru með mjólkuróþol og líka alla hina. Reyndar er það þannig að margir sem eru með mjólkuróþol þola samt rjóma og smjör í litlum skömmtum. Það er vegna þess að þessar afurðir innihalda minna af mjólkurpróteinum og eru líka minna unnar.
Ég verð nú samt að koma því að hér að ég elska rjóma og finnst það eitt það besta í veröldinni 🙂 En það er alltaf gaman að prufa eitthvað nýtt 🙂
En aftur að kókosrjómanum.
Setjið kókosmjólk inn í ísskáp í ca 1 klst eða í frysti í styttri tíma. Ekki nota Light útgáfu það er bara meira vatn í henni og því ekki alveg að virka þegar við ætlum að nota “rjómann”
Opnið dósina og takið það sem er búið að harðna. Setjið í skál og þeytið í smástund, það er nóg að nota pískara.
Það er gott að bragðbæta með smá vanilludufti og/eða smá hlynsýrópi.
Vökvann sem verður afgangs má geyma í ísskápnum og frábært að nota t.d. í smoothie.
Það er hægt að leika sér með þetta og bæta við t.d. jarðaberjum eða hráu kakói og aðeins meiri sætu og búa þannig til kökukrem eða bara jarðaberjarjóma/ súkkulaðirjóma.
Hér gerði ég t.d. döðlukökuna hennar Ebbu Guðnýjar og setti á hana jarðaberjakrem úr kókosrjóma.
Byrjaði á því að þeyta rjómann, setti frosin jarðaber í litlu matvinnsluvélina, bætti við hlynsýrópi og hrærði svo allt saman.
Ég gef ekki upp nein hlutföll því það er eiginlega bara smekksatriði, um að gera að prufa sig áfram 🙂
Ég fæ ekki leið á því að hvetja ykkur til að lesa aftan á dósirnar/fernurnar þegar þið kaupið kókosmjólk. Kókosmjólk og kókosmjólk er nefnilega alls ekki það sama. Það er líka hægt að kaupa lífræna í heilsubúðum 🙂
Verði ykkur að góðu 🙂
Veistu hverju munar í hitaeiningum á þessum og “alvöru” rjóma? 🙂
Sæl, ég er ekki viss um að það muni mikið á hitaeiningum. Þetta er spari líka eins og rjóminn. En það er frábært að hafa þennan möguleika fyrir þá sem þola ekki mjólk og einnig fyrir þá sem eru vegan (borða engar dýraafurðir) og þeir sem fara eftir Paleo mataræði (engar mjólkurvörur).
Kær kveðja,
Oddrún
Mjög sniðug hugmynd
Sæl, takk fyrir þetta innlegg. En hvað áttu við þegar þú segir að kókosmjólk og kókosmjólk sé ekki það sama? Með hverju mælirðu? Kv. Hafdís
Sæl og takk fyrir að lesa 🙂
Kóksomjólk er mjög mismunandi. Það er mjög áhugavert að lesa utan á þessar dósir. Á sumum stendur “coconut milk extract” eða “coconut milk” og engar upplýsingar hversu mikið er af kókoskjöti. Í sumum dósum er allt að 4-5 aukaefni. Sennilega því það er svo lítið kókoskjöt og mikið vatn að það þarf þessi aukaefni til að ná réttri þykkt, lit og áferð.
Þessi sem ég er með mynd af kaupi ég í Bónus og á henni stendur 60 % coconut meat og engin aukaefni. Hana kaupi ég þegar ég ætla að gera svona rjóma. En oftast kaupi ég litla bleika fernu frá sama merki (Santa Maria) og á henni stendur 80 % coconut meat. Hún er alveg dásamleg á bragðið og mjög góð til að nota í ísgerð. Svo er líka hægt að búa sjálfur til kókosmjólk úr kókosmjöli og vatni, allt sett í blandara þangað til það lítur út eins og kókosmjólk 🙂
Kær kveðja,
Oddrún
[…] er uppskrift sem ég birti um daginn af kókosrjóma og þið getið kíkt á, þar eru fleiri […]