Ég var að uppgvöta það núna að þetta námskeið var aldrei auglýst hér á síðunni, bara á facebook. Það eru ennþá laust pláss fyrir einhverja 2 sem langar mikið til að læra að gera allskonar hollustu fyrir sig og sína 🙂
Langar þig til að bæta mataræði þitt eða fjölskyldunnar? Vantar þig nýjar hugmyndir eða veist ekki hvar þú átt að byrja? Besta leiðin til að bæta mataræðið er að byrja að bæta einhverju nýju, spennandi og bragðgóðu inn.
Við búum til og smökkum:
– Grænan sjeik á 2 vegu, chia graut á 2 vegu, kínóa á 2 mismunandi vegu, girnilegt salat, heimagert ofurhollt súkkulaði og hráköku. Þar sem þetta námskeið verður haldið í matreiðslustofu fá allir að prufa en ekki bara fylgjast með. Við borðum síðan saman og spjöllum um allt það sem ykkur langar að spyrja um.
Námskeiðið er í formi fyrirlesturs og sýnikennslu. Það fylgir með mappa með 40 uppskriftum, auk góðra ráða að bæta heilsuna. Ég byggi námsefnið á hugmyndarfræði IIN.
Námskeiðið verður haldið í Grunnskólanum í Borgarnesi
Dagsetning: 25.september, miðvikudagur kl. 18.00-21.30
Verð: 8900 kr
Skráning fer fram hjá Símenntunarstöð Vesturlands,
Hlakka til að sjá ykkur og eiga skemmtilega stund saman
Published by