Það var einn laugardaginn sem krökkunum vantaði eitthvað að gera, stelpurnar voru farnar í eldhúsið að sulla eitthvað og farnar að ná sér í hitt og þetta í bökunarskúffuna til að fara að “baka”. Í stað þess að eyða þessum hráefnum í eitthvað sull sem myndi sennilega enda á mér að þrífa upp bauð ég þeim að baka handa okkur skúffuköku. Þetta fannst þeim spennandi og fór svo að það var bökuð skúffukaka 2 daga í röð og þær sáu um þetta alveg sjálfar. Stórsniðug hugmynd ef krakkarnir eru búnir að læra að lesa og auðvitað þurfa þau að lofa því að ganga frá eftir sig 😉
Þessi kaka er mjög góð, hef boðið upp á hana í mörgum veislum fyrir krakka og þau eru mjög hrifin. En þó er miklu minni sykur en jafnan er í svona kökum auk þess sem hún er mjólkurlaus og hentar því vel fyrir mjólkurofnæmis og óþolspésa.
Fyrsta verk er að finna svuntur og koma sér í gírinn, finna til öll hráefni og vera viss um að þau skilji allar tölur svo þau setji t.d. ekki 7 msk af matarsóta í staðinn fyrir 1 bara af því að mamman skrifar 1 eins og 7 ….. en jú mistökin eru jú til að læra af þeim 😉
Á mínu heimili er nauðsynlegt að deila niður verkefnunum svo systurnar baki ekki bara vandræði. Önnur sá um blautu hlutina en hin þá þurru.
Hráefni í skál 1:
- 7 dl spelt (gróft og fínt til helminga)
- 2,5 dl kókospálmasykur (eða hrásykur)
- 8 msk kakó
- 3 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 tsk matarsóti
- 1 tsk salt
Hráefni í skál 2:
- 4 egg
- 4 dl kókosmjólk (1 dós)
- 25 dropar stevía (mjög auðvelt að mæla dropa á Via Health stevíunni)
- 1 1/4 dl kókosolía, lífræn sólblómaolía eða önnur góð hitaþolin olía
- 1 tsk vanilludropar
Aðferð:
- Blandið hráefnunum vel saman í hvorri skál fyrir sig.
- Hellið blautu efnunum saman við þurru efnin og blandið mjög vel saman.
- Penslið ofnskúffu (ath. þessi uppskrift er í stóra ofnskúffu) og hellið deginu í ofnskúffuna.
- Bakið við 180°c í 20 mín.
Kremið ofan á kökuna:
- 100 g appelsínusúkkulaði
- 100 g 70 % súkkulaði
- 3 msk kókosolía
- 2 msk hlynsýróp
- 1 egg
Aðferð:
- Bræðið súkkulaðið við mjög vægan hita.
- Blandið saman við kókosolíu og hlynsýrópi.
- Þegar það hefur blandast vel saman, takið þá pottinn af hellunni og kælið í smástund.
- Setjið 1 egg út í og hrærið vel með handþeytara þangað til kremið er orðið þykkt og fínt.
- smyrjið kreminu á kökuna þegar kakan hefur kólnað.
Gjörðu svo vel mamma 🙂
Mmmmmmm ég get sko alveg vanist þessu að láta baka ofan í mig um helgar 🙂
Mmmm, ég væri til í að slást í hópinn og smakka 🙂
Ávallt velkomin, bara svolítið langt að skreppa 😉
Á að vera kakó í kreminu eða er þetta innsláttarvilla?
Takk fyrir að benda mér á þetta 🙂 Þetta er bara innsláttarvilla og ég er búin að laga 🙂