Súperhollt – fyrir alla fjölskylduna

Við ætlum við að hittast og eiga góðan seinnipart saman þar sem við lærum að búa til allskonar góða rétti sem henta frá morgni til kvölds.
Þetta námskeið hentar fyrir alla sem vilja bæta meiri næringu inn í daglegt líf. Finnst þér þú alltaf gera sömu hlutina og langar að fá nýjar hugmyndir ? Eða veistu kannski bara ekkert hvar þú átt að byrja ? Þetta námskeið hentar alveg jafnt þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í bættum lífstíl og líka lengra komnum.

 

Við vinnum á 5 stöðvum og að fara allir á allar stöðvarnar. Það er svo miklu skemmtilegra að malla og bralla sjálfur heldur en að horfa á sýnikennslu.

Matseðillinn er eftirfarandi:
Grænn drykkur
Avókadó „jógúrt“ og múslí
Frækex og sólblómapaté
Kínóa með ristuðu möndlukurli
Kínóabollur með heitri masala sósu og regnbogasalsa
Poppaðar lakkrískúlur
Súkkulaðikaka sem ekki þarf að baka

Verð: 9900 kr

Skráning hér: https://goo.gl/forms/bWpvKoLnQlMrLzXO2

Hjónaafsláttur: annar aðilinn greiðir 50 % og það sama gildir ef unglingar koma með foreldri (miðað við 11-18 ára)

Athugið að mörg stéttafélög styrkja félagsmenn um allt að helming af námskeiðisgjaldi.

Published by

Leave a Reply