Það er komið að næsta Gott start námskeiði.
Við ætlum að næra okkur extra vel í 4 vikur með því að elda fallegan, litríkan og bragðgóðan mat.
Við ætlum líka að fræðast um blósykurstjórnun, þarmaflóruna og heilbrigt samband við mat.
Vantar þig fleiri hugmyndir af meðlæti og millimáli?
Langar þig að elda mat sem viðheldur góðri blóðsykurstjórnun og minnkar sykurlöngun?
Langar þig að öðlast meiri sjálfsöryggi í eldhúsinu?
Langar þig að skipuleggja þig betur í eldhúsinu, nýta afganga og hætta allri matarsóun?
Þetta er ekki kúr heldur ætlum við að elda meira frá grunni, nota mikið af grænmeti, góðum kryddum, bæta inn góðum venjum og fá nýjar hugmyndir.
Þú færð sendann innkaupalista og uppskriftahefti áður en við hefjumst handa.
Í hverri viku er lifandi útsending í lokaða FB hópnum sem þið fáið aðgang að og við eldum saman. Þú getur horft á útsendinguna á rauntíma eða seinna þegar það hentar þér betur. Ef þú nærð ekki að fylgjast með öllum “kennslustundunum” getur þú gert það síðar þar sem öll myndböndin eru aðgengileg í nokkra mánuði eftir að námskeiði lýkur.
Skráning hér: https://heilsumamman.com/product/gott-start-oktober-2024/

Innifalið í námskeiðisgjaldinu:
– Uppskriftahefti með rúmlega 75 uppskriftum
– Innkaupalisti
– Tölvupóstur á hverjum virkum degi með fræðslu og hvatningu.
– Rafbókin „Súpur, pottréttir og fleira góðgæti“
– Lokaður Facebook hópur þar sem þú færð stuðning og getur spurt spurninga.
– 5 sýnikennslur sem dreifast yfir 4 vikur.
– Rafrænn fyrirlestur í upphafi og í lok námskeiðis.
Námskeiðið hefst með upphafsspjalli 20.október og lýkur 17.nóvember með lokaspjalli
Sýnikennslurnar verða á þessum tíma en athugið að ef þessir tíma henta ekki er alltaf hægt að horfa seinna, um leið og sýnikennslan er komin inn á FB hópinn er hægt að horfa á hana hvenær sem er.
Sunnudaginn 20.október kl. 20.00-21.00 Upphafsspjall
Þriðjudaginn 22.október kl. 18.00-19.00 (Eldum saman kvöldmat)
Fimmtudaginn 24.október Koma inn 3 sýnikennslur sem þið getið gert um helgina (undirbúningur fyrir mánuðinn, kínóa, múslí, nammi og margt fleira)
Þriðjudaginn 29.október kl. 18.00-19.00 (Eldum saman kvöldmat)
Þriðjudaginn 5.nóvember kl. 18.00-19.00 (Eldum saman kvöldmat)
Þriðjudaginn 12.nóvember kl. 18.00-19.00 (Eldum saman kvöldmat)
Sunnudaginn 17.nóvember kl. 20.00-20.30 Lokaspjall
Námskeiðið kostar 19.900.-
Þeir sem bóka fá afslátt. Ef bókað er fyrir 14.október kostar námskeiðið 15.900 kr
Athugið að mörg stéttarfélög endurgreiða helming af námskeiðisgjaldinu.
Uppskriftirnar innihalda bæði grænmeti, fisk, kjúkling og lambakjöt. Þú aðlagar matarplanið að því hvort þú borðir fisk og kjöt eða ekki. Allar uppskriftirnar í heftinu eru án glútens, mjólkur og sykurs (fyrir utan smá 70 % súkkulaði og smá kókospálamsykur). Þú ræður hvort þú ferð alveg eftir matarskipulaginu eða aðeins að hluta til.














