Mexíkóskar kjötbollur

Frábær og fljótlegur réttur, fullkomin svona í miðri viku.  Afangurinn er svo tilvalin ofan í nestisboxið.   Mér finnst svo mikil snilld að geta bakað kjötbollurnar í ofninum frekar en að steikja á pönnu, það verður eitthvað svo mikil bræla og tekur svo langan tíma.  Það má alveg blanda öllu saman og eiga “deigið” tilbúið inni í ísskáp til að flýta fyrir.

mexíkó kjötbollur

Hráefni:

  • 500 gr hakk
  • 1- 1,5 dl möndlumjöl
  • 1 egg
  • 1/2 laukur
  • 1 sellerístöngull
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 2 tsk grænmetiskraftur
  • 1 msk oregano
  • 1/2 msk paprika
  • 1 tsk cumin
  • 1 tsk cajun barbeque krydd frá Pottagöldrum

Það má alveg krydda bollurnar ennþá meira því möndlumjölið er svolítið sætt og því gott að krydda vel á móti. 

Aðferð:

  1. Blandið hakki, kryddum, eggjum saman í skál
  2. Maukið sellerí, lauk og hvítlauk í matvinnsluvél (þessar litlu sem fylgja töfrasprotanum eru alger snilld í þetta) og bætið út í.  Getið líka bara saxað smátt eða jafnvel sleppt ef þið nennið engu veseni.
  3. Þykkjið “deigið” með möndlumjöli þangað til hægt er að móta bollur.  Gæti þurft minna eða meira en uppskriftin segir til um.  Ef þið sleppið því að mauka selleríið og laukinn þurfið þið minna af möndlumjöli.
  4. Mótið bollur, raðið í eldfast mót og bakið í 20 mín við 200°c

Guatamole:

  • 1 avakadó
  • Safi úr lime, 1 msk (uþb.)
  • 1 hvítlauksrif
  • 1/2 tsk cumin
  • salt og pipar

Maukið avakadó með töfrasporta eða stappið með gafli, kreystið lime safann yfir, bragðbætið með hvítlauk, salti og cumin.

Ferskt salsa:

  • nokkrir vel þroskaðir tómatar
  • vorlaukur
  • smá salt
  • Safi úr lime, 1-2 msk

Brytjið tómatana og vorlaukinn smátt,  setjið salt og lime yfir.

Á myndinni var ég reyndar ekki með salsa heldur bara salat en salsað er alveg afskaplega gott með og hér er komið tilefni til að búa þessar bollur til mjög fljótlega aftur  og þá með salsanu 🙂

 

Published by

Leave a Reply